|
|
21.11.2006 13:25:14 / swassi
Ákvað að prófa nýja bloggsíðu. Ef ekki vel gengur þá breyti ég bara
aftur.
Nýja slóðin er
www.swassi.bloggar.is
Endilega segið mér hvað ykkur finnst
Kv.
Selurinn
»
04.11.2006 16:11:03 / swassi
Djöfull er maður eitthvað slappur við þetta blogg hérna.
Tók þetta biostatpróf um daginn, gekk nú ekki nógu vel, enda
eitthvað að leiðinlegasta sem ég geri. En það er annar séns á að fá
undaþágu á þessu í lokaprófinu. Annað próf 6 des.
Vaknaði kl 4 um nóttina fyrir nokkrum dögum vegna brjálaðs
hvassviðris allt í einu. Svalahurðin uppá 3 hæð hjá okkur fauk upp,
heyrði í henni skellast. Mætti kallinn á naríunum einum saman með
borvél í hönd og ætlaði aldeilis að redda hlutunum. Ætlaði bara að
bora hurðina pikkfasta enda orðinn nett pirraður á þessu. En nei,
borvélin var batteríslaus, engir naglar til þannig að ég gat ekki
neglt hana fasta. Endaði með að ég dró rúmið hans Magga Mcdonalds
fyrir hurðina, það dugði fram á morgun.
Okkar helsta dægradvöl hérna (fyrir utan að læra eins og skepnur)
er að hanga á stað sem heitir Imperial og spila Pool og Snooker.
Þvílík snilldar íþrótt þarna á ferð. Var ósigrandi fyrst um sinn,
en fór svo allt í einu að tapa fyrir mönnum eins og Sigurbirni og
einhverjum fleiri kellingum  En ég er kominn á gott skrið aftur,
er að nálgast mitt fyrra form.
Talandi um íþróttir þá skellti ég mér á körfuboltaæfingu hjá
háskólaliðinu hérna í Debrecen og auðvitað var ég sign-aður á
staðnum og boðinn samningur sem hljóðar uppá væna peningasummu og
samning við ABIBAS  Þannig að nú er ég að fara að æfa með liðinu
á þriðjudögum (bara ein æfing á viku). Leikur eftir 2 vikur held ég
og svo í Mars þá er mót hérna í Debrecen milli háskólanna í
Ungverjalandi.
Það er kona að þjálfa okkur, bauð mér að koma æfa sund en ég hló að
henni. Sagði mér að maðurinn hennar hafi þjálfað Tindastól í körfu
fyrir nokkrum árum, kannaðist meira segja við Snæfell en hafði ekki
enn heyrt um Brokey.
Annars er bara allt gott að frétta af mér, Kalli besti vinur var að
eignast litla stelpu í gær, eða var það í fyrradag... og óskum við
honum og Moniku til lukku með það
Ofninn í herberginu hjá mér er loksins kominn í lag þannig að
hitastigið inn hjá mér er komið yfir frostmark.
Bið kærlega að heilsa öllum heima
Selurinn
»
24.10.2006 11:05:39 / swassi
Sit inní herberginu mínu, hlusta á Rás 2 og er að læra undir
Biostatistics. Á íslensku mundi þetta vera líkindareikningur, sem
mér finnst alveg einstaklega óheppilegt fag. Get með engu móti
fengið mig til að finnast þetta vera áhugavert. Próf á
miðvikudaginn í þessu. Ef ég næ 75% af prófinu þá má ég sleppa við
það á lokaprófinu um jólin, ekki alveg að sjá það gerast  En
kraftaverkin geta gerst, ef ekki þá má taka prófið aftur í nóvember
held ég og þá gildir betri einkunnin.
Var í efnafræði prófi seinustu viku og gekk bara sæmilega. Var um
50% fall en kallinn náði þessu með stæl
Nú hef ég verið hérna í Ungverjalandi í næstum 2 mánuði, líkar
dvölin alveg rosalega vel. Verðlag gott, veður ennþá milt
(skítakuldi á kvöldin) og nóg að gera í skólanum. En maturinn hérna
í þessu landi mótmæla er ekki alveg að gera sig. Búinn að fá eina
góða steik á veitingastað með piparsósu og öllu. Ekki mikil
sósumenning hérna, vantar alveg rjómasósurnar og ég tala nú ekki um
lambalæri.. ekki búinn að hugsa um annað seinasta mánuðinn. Höfum
reyndar verið duglegir að elda, tala nú ekki um burritós, það er
eldað 2-3 í viku á okkar heimili, mjög gott
Vinur hans Sigurbjörns er að koma núna um helgina og ætlar hann að
koma með læri fyrir okkur, grænar baunir og sósubréf, get ekki
beðið. Árni ætlaði nú að koma frá London og kíkja á strákinn en kom
með einhverjar afsakanir um “workshop” Held að það sé einhver Nýju
Gíneu lykt af þessu hjá honum
Skruppum í dýragarðinn hérna í Debrecen um daginn. Sá þar krókódíl
í fyrsta skipti og já eyrað á parduskisu. Hún var ekki mikið að
nenna að koma út úr húsinu sínu og sýna sig fyrir mannfólkinu.
Ætlum að mæta þarna í vor þegar það fer að hlýna aftur. Öll dýrin
voru steinsofandi, held að ljónin voru dauð inní herberginu sínu,
birnirnir voru steinsofandi, krókódíllinn hreyfði sig ekki og
slöngurnar högguðust ekki. Dýragarðurinn eitthvað að spara, þetta
var allt gervi!!!???!!!
Jæja ætla að halda áfram að fara yfir þetta hel#$!”#$ biostat.
Bið að heilsa ykkur í bili
Selurinn
»
11.10.2006 20:15:52 / swassi
Jáhhhh, komið öll sæl !!!!
Vildi aðeins segja ykkur frá skólamótinu í fótbolta sem var haldið
seinustu helgi. Liðið okkar hét F.C Valur.???? Ekki alveg að skilja
það. Afhverju ekki F.C. Snæfell, F.C.Brokey eða þá F.C. Hrafnaflóki
 (íþróttafélagið á patró)
Auðvitað voru miklar væntingar gerðar til míns liðs, enda valinn
maður í hverri stöðu. Sjálfir ætluðum við gjörsamlega að rústa
þessu móti.... en það fór ekki alveg á þann veg. Fyrsti leikurinn
okkar var gegn “slakara” hinu íslenska liðinu. Hann fór 0-0. Þeir
pökkuðu allir í vörn, 5 á milli stanganna í handboltamarki. Næsti
leikur var gegn einhverjum ungverjum. Sá leikur fór 3-3 bara vegna
ótrúlegs dómaraskandals. Þegar hann sagði að mínúta var eftir, þá
liða aðrar 3 þangað til að hann flautaði leikinn af og þeir náðu að
jafna.
Næst var það lið ísraels sem var baráttu út í gegn en endaði með
sigri íslendinga, 1-0
Næsti leikur var gegn fulla liðinu. Langskemmtilegasti leikurinn og
besti mórallinn. Unnum þann gaur 5-1 þar sem ég skoraði mitt fyrsta
og eina mark í mótinu
Eftir riðla keppnina vorum við í 2. sæti í okkar riðli og komnir
áfram í 8 liða úrslit. Þar mættum við sigurvegurum seinustu 3 ára,
Persian Police. Írana andsk... helvíti góðir og sterkir. Mættum þar
ofjörlum okkar. Töpuðum 5-1. Þar með var okkar þátttöku lokið í
þessu skólamóti, ekki alveg sáttir við okkar frammistöðu. Eina sem
við græddum á þessu voru: meiðsl, harðsperrur, sviti og vond lykt
og svo ótrúlega sólbrunnir.
Þess má geta að íslensku stelpurnar smöluðu í lið og gerðu sér
lítið fyrir og sigruðu mótið í stelpudeildinni. Spiluðu á móti
norsku stelpunum, sem sumar hverjar voru andskoti skrautlegar eftir
daginn.
Sjálfur er ég bara að lesa fyrir skyndiprófin. Er að fara í próf í
næstu viku, svo kallað self control test nr. 1. Get fengið einhver
aukastig útúr þessum prófum sem gilda til lokaeinkunnar.
Svo er það fyrirlestur sem ég þarf að halda í 8 viku. Umræðu efnið
mitt er Fluorescence spectroscopy . Þeir sem vita eitthvað um
þetta, er bent á að kommenta og segja mér frá hvað þetta er 
Þetta verður bara gaman.
Set nokkrar myndir frá fótboltamótinu hérna inná.
Annars bið ég bara kærlega að heilsa öllum.
Selurinn
»
29.09.2006 14:59:52 / swassi
Jæja þetta gengur ekki lengur, verð að fara prenta eitthvað hérna
inná.
Í þessu sit ég inn í herberginu mínu, ber á ofan fyrir framan
tölvuna og spenni titsið á mér til skiptis, enda erum við
Sigurbjörn búnir að vera duglegir í ræktinni þessa vikuna.
Talandi um stór karlmanns tits þá hefur mér fundist að flestir
kallar hér, þá aðalega kennararnir okkar tala með Schwarzenegger
hreim. Ímyndið ykkur Swassa sjálfan segja orð eins og “chemical
equilibrium”,”heterogeneous” og “genetic clone”. Mjög skemmtilegt
enda vorum við að hlæja að einum kennara áðan.
Fótboltinn er kominn á fullt hjá okkur, mætti á miðvikudagskvöldið
seinasta og var bara nokkuð góð...nei ég var áberandi bestur 
Þarna kom eitthvað lið frá skólanum til að taka okkur uppá myndband
fyrir skólann og auðvitað tókst mér að meiða mig á seinustu 3
mínútunum. Körfubolta meiðsl síðan úr Brokey – Keflavík í Kef
2004-2005. Held að þetta sé leikurinn sem Hemmi “beint ofaní”
blokkaði einhvern helvítis keflvíking í drasl og nánast bað hann
svo afsökunar á eftir  . En held að ég verið orðinn góður fyrir
skólamótið sem verður þar næstu helgi. Sýnist á mannskapnum að við
verðum með sigurliðið
Við Sibbi ætlum á stað að éta sem heitir Wasabi. Er ég að fara
smakka sushi í fyrsta skipti, kunnugir segja þetta vera mjög gott.
Svo verður haldið í partý. Já enn eitt partýið, sumir spyrja sig
hvort að ekki sé nóg komið....jú það fer að líða að því. Það er
bekkjarpartý hjá okkur í kvöld, aðeins að fara að kynnast
útlendingunum í okkar bekk betur og svo á morgun er víst aðaldæmið.
Norræna busavígslan sem ku vera svaðaleg. Reyndar fer ég í
paintball kl:11 með íslendingunum og svo er það beint eftir það í
busavígsluna. Farið verður í ratleik og á stoppistöðvunum er víst
allt flæðandi í búsi, svo fær maður auka stig fyrir að vera extra
klikkaður  Spurning hvað maður lendir í. Svo er kominn pása hjá
okkur  enda styttist í fyrsta próf.
Talandi um partý þá héldum við félagarnir partý á seinustu helgi.
Heppnaðist bara mjög vel, troðið af fólki og mikil læti, svona eins
og það á að vera. En klukkan korter í eitt var útidyra hurðin
nánast klofin í tvennt þegar nágranninn okkar fyrir neðan okkur
barði í hana og tilkynnti okkur það að eftir 5 mínútur hringdi hann
á lögguna. Þannig að ég pantaði þá bara leigubíla fyrir liðið sem
fórum öll á einhvern háskóla pöbb. Góður endir á góðu kvöldi.
Ætla að setja myndir frá grillpartíinu hjá Svenna og svo Partíið
heima hjá okkur Sigurbirni og Magga. Þarna sjáið þið íslendingana
hérna, gítarinn minn sem ég splæsti í og svo Tesco rusl hjólið mitt
fræga.
Tók reyndar út ferðalagið hingað þær myndir, tóku alltof mikið
pláss, set þær inn aftur seinna.
Bið að heilsa ykkur öllum
Selurinn
»
17.09.2006 21:30:20 / swassi
Sælt veri fólkið!!!
Jæja þá er fyrst vikan afstaðin og gekk hún bara bærilega. Tíminn
fór aðalega í það að hlaupa á milli bygginga og finna réttu
stofurnar, en það hafðist allt á endanum.
Fór í Tesco (sem sýgur by the way) og splæsti í reiðhjól. Sé mikið
eftir því að hafa keypt mér ódýrasta 18 gíra hjólið í bænum. Fyrst
þurftum við að fara með það á hjólreiðaverkstæði til að herða allar
skrúfur og bolta. Svo var haldið heim á bremsulausa hjólinu. EN
NEI, framdekkið losnaði af gjörðinni og slangan stóð út, þurfti að
taka nánast allt loft úr því til að koma dekkinu aftur á gjörðina,
var klukkutíma að hjóla 10 mínúta leið því að þetta gerðist aftur
og aftur. Daginn eftir, í grenjandi rigningu, brotnar annar
pedallinn af. Standarinn brotnaði líka af hjá Sigurbirni. Er
hálfpartinn að vona að því verði stolið af mér
Auðvitað var okkur busunum boðið i partý á föstudaginn og þar
þurftum við að “bonga” bjór og drekka svo einhvern viðbjóðs
ungverskt skot. Fólk kannski spyr, hvað er að bonga? Fyrst þegar ég
heyrði að við ættum að bonga þá leist mér ekkert á blikuna, hélt að
ég ætti að fara reykja gras !!!!! En mér til mikils léttis var það
ekki svo. Sjálfur tók ég einn og hálfan bjór á rúmum 2 sekúndum,
enda vanur maður í stúdids  En annars var ég bara ótrúlega
rólegur, held ég.........
Á sunnudögum í vetur verða Íslendingarnir með fótbolta og var
fyrsta mæting í dag. Þetta var algjört HELL, vorum að spila í 27-8
stiga hita og í logni. Get sagt ykkur að það að þetta er mjög góð
leið til að brenna. Hélt að ég væri að deyja. En náði mér svo
þokkalega á strik, minnir að ég hafi sett boltann 3 í möskvana,
bara nokkuð sáttur við mína frammistöðu.
Jæja ætla að segja þetta gott núna, er að fara leggjast í bólið.
Bið að heilsa í bili,
Selurinn
»
06.09.2006 18:23:40 / swassi
Halló halló halló, loksins kominn með internetið, en það verður
kannski bara tímabundið. Það gengur nefnilega allt mjög hægt hérna
í Ungverjalandi í internets- og tæknimálum. Við erum loksins komnir
með íbúð, þessir við eru: ég, Sigurbjörn og Magnús og eru þetta
fínir drengir. Fengum 4 herbergja (nóg gistipláss) íbúð á
ágætisstað, kannski svona 15 mín. labb í skólann en hingað til
höfum við alltaf tekið leigubíl í skólann  Hann kostar ekki
drullu, erum að borga svona 150-250 krónur á mann í skólann og um
300 krónur í bæinn, sem er náttúrulega ekki neitt. Talandi um að
kosta ekki neitt þá erum við að borga fyrir íbúðina, internet,
sjónvarp og allt hita- og rafmagnsbullið um 14 þús krónur á mann
Enda lifi ég eins og kóngur hérna, er búinn að fara út að borða
hvert einasta kvöld, nema kvöldið í kvöld. Ætli það verði ekki bara
ofn pizza eða samloka með skinku og osti...yummí  Reyndar á
fyrstu nóttinni minni hér í búðinni þá vaknaði ég um 6 leitið við
að það voru 4 hundar að gelta á hvorn annan, hani gaggandi og fluga
að pirra mig. Annars er maður bara að venjast öllu hérna, þetta
verður alltaf betra og betra. Neita því ekki að hafa fengið smá
menningarsjokk þegar við komum inní bæinn. Fyrsta sem við sáum voru
niðurníddar blokkar frá tíma kommúnistans. Vildi helst fara að
grenja og snúa við heim. En svo byrjaði ég í ungversku námskeiðinu
og þá hitti maður alla og fór að kynnast fullt af nýju fólki. Er í
þessu námskeiði út þessa viku og svo tekur alvaran við á mánudaginn
11. sept. Þá byrjar hið raunverulega læknanám
Haffi og Kári, sem eru 2. og 3.eða 4.árs nemar buðu í partý á
föstudaginn seinasta og bærinn troðfylltist af blindfullum
íslendingum, getið rétt ímyndað ykkur hvernig það var  Sjálfur
byrjaði ég hægt, var lengi í gang en svo þegar við komum á Ego, sem
er einn af aðalstöðunum hérna, þá tók kallinn við sér, skellti sér
á barinn, splæsti á allan barinn og tók svo 3-6 Breezer skot 
Ekki alveg með fjöldann á hreinu enda mann ekki mikið eftir
heimferðinni. Var víst syngjandi heima hjá Ásgeir, gistum hjá honum
fyrstu 5 dagana, honum til mikillar ánægju. Þessu man ég ekki eftir
 Svona verður maður eftir vodka red bull og Brezzer Fannar þú
þekkir þetta
Það munar engu að ég sé að fara kaupa mér almennilegt heimabíó,
þau eru alla veganna helmingi ódýrari hérna ef ekki meira og þá er
ég að tala um Marantz og Kenwood. Tala nú ekki um flatsjónvörpin,
shit....þau eru svo ódýr. Ætla samt að reyna halda aftur að mér í
eyðslunni en ætla þó að splæsa í kassagítar og svo kannski
rafmagnsgítar í nánustu framtíð
Ætla reyna setja einhverjar myndir inn núna bráðum, þarf aðeins að
fikta í þessu. Nokkrar myndir úr ferðalaginu hingað og af
skólasvæðinu, allt mjög spennandi  Er kominn með gsm númer hérna
út: 0036706330629 og verið þið svo dugleg að hringja í kallinn.
Læt þetta duga í bili og kveð ykkur á Íslandinu.
Viszlát (Bæbæ á ungversku)
Selurinn
»
17.08.2006 00:20:07 / swassi
Jájájá, kallinn kominn með bloggsíðu enda á leiðinni í
6 ÁRA nám í Ungverjalandi
Hlakka til að skrifa sögu mína fyrir ykkur á ískalda Íslandinu í
vetur.
Læt þetta duga núna, bless í bili
Selurinn
»
|
|